SÁPUGERÐARKASSI
Kassi sem inniheldur allt til að búa til litríkar og skemmtilegar sápur heima.
Kassinn inniheldur:
-600 gr af glærum sápugrunni
- 3x litarefni (Athugið að litirnir geta verið mismunandi)
-200 g af litríkum sápubitum (athugið að liturinn getur verið mismunandi)
-15 ml af sápuilmi
- kleinuhringjamót
-þurrkuð blóm til skrauts
-Upplýsingar og leiðbeiningar um gerð sápanna.
Athugið að litir geta verið mismunandi!
Sápugrunnurinn er bræddur við vægan hita í 2-3 mínútur í örbylguofni. Litarefni hrærð saman við smá olíu (t.d. ólífuolíu). Því næst er ilmi bætt við. Sápunni hellt í mót. Mótin geta í raun verið hvað sem er, skyrdollur/ möffinsform o.fl. sem ykkur dettur í hug. Best er að nota mót úr plasti eða sílikoni svo auðvelt sé að ná sápunum úr.
Hægt er að setja sápurnar í ísskáp svo þær harðni fyrr. Ef ætlunin er að gera marglita „gimsteinasápu“ er best að fá einhvern fullorðinn til að skera litaða kalda sápu á skurðarbretti með stórum og beittum hnífi (skera alltaf niður á við). Flísunum er svo blandað við bráðinn sápugrunn.
Hægt er að sjá kennslumyndband frá URD hér:
6.490 kr.
Ekki til á lager
Tengdar vörur
-
BJARMI FLJÓTANDI SÁPA
5.450 kr. -
STEINSÁPA -BLÓÐBERG
2.300 kr. -
STONE SÁPA – SVARTUR SANDUR
2.300 kr. -
STONE SÁPU – HAFRAR
2.300 kr.
Anna –
Ég og dóttir mín hef notað þennann pakka svölið í cozy stund hjá okkur og gera þetta saman ... það nýjasta er að nýta þetta í gjafir plús kerta DIY , mæli hiklaust með þessu 100%